12.04.2010 22:28

Gef ykkur skýrslu.

Nei, nei ég ætla sko ekki að nefna neina skýrslu hér......................ekki einu sinni hrossaskýrslu, forðagæsluskýrslu, skattaskýrslu eða neina aðra skýrslu takk fyrir.
En lofa spennandi hrossasögum á næstunni.

Bara svona áður en ég fer að halla mér eftir góðan dag í hesthúsinu vildi ég benda ykkur á að ég setti inn nokkrar myndir frá afmælisveislunni hans Sveinbjörns í gær.
Hann átti frábæran 70 ára afmælisdag og fékk margar góðar heimsóknir af því tilefni og fékk m a folatoll í afmælisgjöf kallinn. Skemmtilegur dagur og vel heppnaður.

Einnig setti ég inn vetrar myndir sem voru teknar í Hnappadalnum á páskadag.