09.09.2019 18:00
Og sitthvað fleira......................
Þeir voru ófáir hestahóparnir sem komu til okkar í sumar. Bæði var um að ræða skipulagðar ferðir og svo hópa á eiginn vegum. Þessi flotti hópur sem þarna er á myndinni kom ríðandi Fossaleiðina úr Hörðudal hingað yfir í Hnappadalinn. Það er alltaf gaman að fá góða gesti í heimsókn spjalla, gleðjast og rifja upp góða minningar.
Heiðurshjónin frá Laugardælum voru hress og kát eins og vera ber í svona ferðum.
|
Hjörtur og Mummi voru kátir jafnvel snemma morguns...........
Hjónin á Hólabaki að leggja á gæðingana.
Þessi tvö eru gamlir vinir og samstarfsfólk mitt frá því ég var að stússa í félagsmálum hestamanna.
Við vorum saman m.a í stjórn LH og fleiri stjórnum og nefndum hestamanna.
Sigríður Sigþórsdóttir og Haraldur í Laugardælum.
Þarna eru bændur í Laugardælum og Hólabaki klárir í hnakkinn.
Sigurður á Kálfalæk og hans fólk hefur komið við hjá okkur í fjölda ára.
Þá er oft tekið líflegt spjall og slegið á létta strengi hér á hlaðinu.
Á myndinni eru Svavar Gestsson og Sveinbjörn Hallsson að taka stöðu mála.
Þessir tveir Sigurðar voru í fylgdarliði Sigurðar á Kálfalæk og voru alveg til í að stilla sér upp fyrir myndatöku.
Þessi var líka í liðinu og sýndi mér hann Hrellir minn sem einu sinni var.
Mér sýndist bara fara vel á með þeim.
Góðir gestir voru margir hér á ferðinni í sumar eins og þessi mynd ber með sér.
Gamli kúasamlinn hann Steini Guðmunds kom í heimsókn með frúnna sína.
Þau voru kát í gamla bænum eins og við hin að fá þessa heimsókn.
Þessi frænkuskott komu í hesta og heimalingaheimsókn í sumar.
Já og svo voru þær liðtækar með frænku sinni að baka súkkulaðiköku með súper miklu kremi.
................svona eins og sjá má á sumum.
Dómstörf eru alltaf skemmtileg og tími þeirra er vor og sumar.
Þarna er ég í góðum hópi dómara á gæðingamóti Hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði.
Mjög eitthvað vestlenskt yfir þessum hópi....................... finnst mér.
Valdimar Skagamaður, Lárus Hólmari, Lillí tamningamaður í Söðulsholti, ég og svo hún Hanifé sem einu sinni var í vinnu hjá okkur í Hlíðinni.
Þegar við dæmum í Hafnarfirði sjá þessar elskur alltaf um að við höfum það gott hvað veitingar varðar.
Algjörir snillingar þessar tvær, það er jú nauðsynlegt að hafa dómarana geðgóða.
En vinir mínir í Dölunum áttu nú metið í blíðu þegar þeir héldu mótið sitt.
Þeir buðu uppá skemmtilegan dag með góðum hrossum víðsvegar að.
Alltaf gaman að koma í Búðardal.
Já sumarið er tíminn ...............var eitt sinn sungið.